Thomas Palsson's profile picture

Thomas Palsson

Til þess eru nokkrar leiðir og hér förum við yfir nokkur atriði sem hamingjusamt fólk tileinkar sér.
1. Ekki erfa hlutina
Hamingjusamt fólk veit að það er betra að fyrirgefa og gleyma. Ellegar gæti neikvæð orka ýtt í burtu jákvæðri líðan. Ef þú erfir hlutina við einhvern aðila veldur það streitu, jafnvel depurð og kvíða. Hvers vegna að láta einhvern sem hefur gert þér eitthvað hafa þetta vald yfir þér, stjórna þér?
2. Koma vel fram við alla
Það hefur víst verið vísindalega sannað að góð framkoma við annað fólk veldur aukinni hamingju. Í hvert sinn sem þú framkvæmir óeigingjarna hluti framleiðir heilinn hormón sem heitir Serotonin sem dregur úr streitu. En þetta er ekki það eina jákvæða við góða framkomu því það byggir einnig upp góð sambönd við annað fólk.
3. Horfa á vandamál sem áskoranir
Orðið vandamál á ekki að finnast í orðabók þess hamingjusama. Vandamál er eitthvað neikvætt, eitthvað sem dregur fólk niður – þarf að kljást við. Áskorun eða verkefni felur í sér að þurfa að kljást v