1. Þegar ég var sjö ára framdi ég mesta prakkarastrik ævi minnar. Ég hafði þá nýlega uppgötvað að lykillinn að flyglinum heima virkaði sem þjófalykill. Hann gekk að öllum hurðum heimilisins, og líka að íbúðinni á næstu hæð fyrir neðan. Ég braust þar inn, læsti klósettinu og faldi lykilinn að því í nærbuxnaskúffu.
2. Ég kann að umgangast skotvopn. Pabbi átti 14 riffla og var einn af fáum mönnum á landinu sem hafði leyfi fyrir skammbyssum. Ég skaut fyrst af riffli þegar ég var fimm ára. Tveimur árum síðar fékk ég að skjóta af skammbyssu.
3. Eitt af hobbíunum mínum er að mála myndir.
4. Þegar ég var um tvítugt voru tvö plaköt af Madonnu uppi á vegg hjá mér. Ég sá myndina með henni, Desperately Seeking Susan, a.m.k. fimmtán sinnum. Sem er frekar skrýtið, því ég er ekki hrifinn af henni í dag.
5. Ég var mikið í andaglasi þegar ég var lítill. En í seinni tíð hefur áhuginn á andlegum málefnum aðallega verið fræðilegur. Ég er í dulspekiklúbbi, við erum fjórir. Við hittumst af og til að ræ