Ég er aðallega 3 barna móðir og gift frábærum manni. Ég er leikskólakennari,krakkajóga kennari og Body jam kennari...Ég er kona með stóra drauma:)
ég er gift Árna Jökli og við eigum 3 yndisleg börn. Þau eru 6 ára 3 ára og 5 vikna. þau heita Hjalti Snær,Anna Sunna og Kristján Már. Kristján Már hefur ekki enþá komist heim.Við búum núna á barnaspíta Hringsins. Hann nefnilega fæddist með auka rafbraut í hjartanu, Wolf Parkinson White sindrom, þannig að hann fer í hraðtakta, núna er verið að reyna að stilla að af með lyfjum.