25.01.2016
00:00
Gestur þáttarins er Árni Gunnarsson fyrrverandi fréttamaður hjá útvarpinu, þingmaður og framkvæmdastjóri. Árni segir sögur frá fréttastofunni og því merkisfólki sem þar vann. Hann var í gamni kallaður Gosi á fréttastofunni enda yfirleitt sendur á vettvang þegar eldgos bar að höndum. Árni lýsir því þegar hann í byrjun goss flaug yfir gosstöðvar í Vestmannaeyjum. Hann segist alltaf hafa séð eftir því að hætta á fréttastofunni en annað tók þó við sem gladdi hann. Árni var þingmaður Alþýðuflokksins og varð síðar framkvæmdastjóri Heilsustofnunnarinnar í Hveragerði.
Comments
00:00